Hvað get ég gert?

Stríðni eða einelti?

Það er mjög algengt að börn stríði hvert öðru eða geri grín.  Við erum öll misjöfn, sumir eiga auðvelt með að taka stríðni og á meðan öðrum líður strax illa sé einhver að stríða eða gera grín að viðkomandi.  

Stundum finnst manni gaman að stríða, og stundum finnst þeim sem maður er að stríða það líka skemmtilegt. En stundum finnst manni gaman að stríða, þó að þeim sem maður stríði finnist það ekki skemmtilegt. Stundum er bara svo erfitt að hætta, þó maður sjái eftir því og líði illa með það.  

Það er mikilvægt að hafa í huga að ef maður er að stríða eða gera grín að einhverjum, þá þarf hinum líka að finnast það skemmtilegt. Stundum viðurkennir hinn ekki að honum/henni líði illa með stríðnina og þess vegna er ennþá mikilvægara að hafa þetta í huga. 

Það er líka misjafnt hvað manni líkar vel við aðra. Maður “fílar” suma vel á meðan manni finnst aðrir frekar glataðir, suma öfundar maður og aðra á maður erfitt með að þola.  

Stundum, þegar maður finnur einhverjar neikvæðar tilfinningar í garð einhvers annars, þá lætur maður það í ljós með einhverjum hætti. Maður segir t.d. eitthvað neikvætt við eða um viðkomandi, lætur sem maður heyri ekki þegar hann/hún er að tala eða gerir eitthvað til að láta viðkomandi finna að hann/hún sé ekki eins merkileg eða merkilegur og maður sjálfur.  

Oftast sér maður eftir þessu og reynir að hætta. Stundum tekst það fljótt en stundum tekst það illa. Stundum er maður ekki endilega búinn að fatta það sjálfur hvernig maður kemur fram, en aðrir segja að maður sé að leggja í einelti.  

Hvernig lítur einelti út?

Það er mjög misjafnt hvernig einelti lítur út, en ef þú ert ein/einn af þeim sem gera stundum þau mistök að koma fram við einhvern á eftirfarandi hátt og gerir það oft ert þú mögulega að leggja í einelti. Þá er mikilvægt að ræða við einhvern fullorðinn og fáir aðstoð.  

  • Þú gerir grín að sama aðilanum, niðurlægir hann, kallar hann ljótum nöfnum og fleira í þeim dúr, eða tekur þátt í því með einhverjum öðrum. 
  • Þú ræðst að líkama einhvers, t.d. með því að sparka, lemja, klípa, fella eða annað slíkt, eða tekur þátt í því með einhverjum öðrum.
  • Þú gefur sama aðilanum einhvern svip, augngotur eða annað í þeim tilgangi að láta viðkomandi líða illa, eða tekur þátt í því með einhverjum öðrum. 
  • Þú skilur ákveðinn aðila útundan, hunsar viðkomandi þegar hann/hún talar, kemur í veg fyrir að hann/hún fái að sitja við sama borð, leyfir honum/henni ekki að vera með í samræðum og fleira, eða tekur þátt í því með einhverjum öðrum. Athugaðu samt að stundum vilja vinir vera í næði en ef það er þannig að flestir aðrir fá að vera með en þú færð yfirleitt ekki að vera hluti af hópnum þá er mögulega verið að leggja þig í einelti. 
  • Þér finnst skemmtilegt að láta ákveðnum aðila líða illa, reynir að gera eitthvað til að fá aðra til að hlæja að viðkomandi eða finnast hann/hún asnaleg/ur. Einnig ef þú tekur þátt í þessu með einhverjum öðrum
  • Þú býrð til kjaftasögur um einhvern, lýgur upp á viðkomandi einhverju sem lætur hann/hana líta illa út eða koma viðkomandi í vandræði, eða tekur þátt í því með einhverjum öðrum.
  • Þú skemmir hluti einhvers, felur þá, tekur þá af viðkomandi eða eitthvað þvíumlíkt eða tekur þátt í þessu með einhverjum.
  • Þú ógnar ákveðnum aðila, hvort sem er með orðum eða líkamlegum hætti og þú gerir það til að hræða viðkomandi eða láta honum/henni líða illa á annan hátt, eða tekur þátt í þessu með öðrum.
  • Þú bíður eftir ákveðnum aðila, t.d. í fataklefanum, úti í frímínútum, á leið í eða úr skóla í þeim tilgangi að gera eitthvað sem lætur honum/henni líða illa, eða tekur þátt í því með öðrum.

Athugaðu að það er hægt að áreita á fleiri vegu en stendur hér fyrir ofan og þetta gildir hvort sem um er að ræða áreiti á netinu eða í eigin persónu. 

Hvað get ég gert?

0-5 ára

6-15 ára

16 +