Er verið að leggja mig í einelti?

Stríðni eða einelti?

Það er ekki alltaf auðvelt að vita hvort verið er leggja mann í einelti eða ekki. Við erum öll misjöfn, sumir eiga auðvelt með að hunsa stríðni og áreiti á meðan öðrum líður strax illa sé einhver að gera grín að manni, stríða eða áreita.

Sá sem á auðvelt með að hunsa áreiti (eitthvað sem veldur manni vanlíðan) getur t.d. verið lagður í einelti í einhvern tíma áður en hann áttar sig á því eða fer að líða illa yfir því og sá sem á ekki eins auðvelt með að hunsa áreiti getur t.d. upplifað það að vera lagður í einelti, þó það sé ekki endilega að gerast.

Þegar maður upplifir að einhver sé að koma illa fram við mann er mikilvægt að ræða við einhvern fullorðinn og fá aðstoð, þar sem það er alltaf hægt að finna leiðir eða lausnir sem henta. Stundum þarf maður aðstoð við að átta sig á því hvort um einelti sé að ræða eða misskilning og stundum þarf maður aðstoð við að stoppa af það sem er að gerast, hvort sem það er einelti eða ekki.

Allir geta gert mistök

Það er mikilvægt að muna að allir gera mistök. Sumir gera sömu mistökin oftar en einu sinni, sumir eru fljótir að læra af mistökunum og aðrir eru lengur að læra af þeim. Sá sem leggur í einelti er ekki vondur eða illa innrættur, heldur gerir mistök og þarf aðstoð við að breyta hegðun sinni. Það er því líka mikilvægt að segja frá svo hann/hún fái aðstoð.

Ef þú heldur að þú sért að lenda í einelti eða lendir oft í samskiptavanda, talaðu við einhvern fullorðinn sem þú treystir og fáðu aðstoð!

Smelltu á hnappinn hér að neðan til að fá upplýsingar um þá aðila sem þú getur leitað til.

Hvernig lítur einelti út?

Það er mjög misjafnt hvernig einelti lítur út en ef þú upplifir að einhver geri eitthvað af eftirfarandi (ekki endilega allt) og það gerist oft , þá er mögulega verið að leggja þig í einelti. Þá er mjög mikilvægt að þú ræðir við einhvern fullorðinn.

  • Einn eða fleiri gera grín að þér, niðurlægja þig, kalla þig ljótum nöfnum og fleira.
  • Einn eða fleiri ráðast að líkama þínum, t.d. með því að sparka, lemja, klípa, fella eða eitthvað annað slíkt.
  • Einn eða fleiri gefa þér einhvern svip, augngotur eða annað sem virðist vera gert í þeim tilgangi að láta þér líða illa.
  • Einn eða fleiri skilja þig útundan, hunsa þig þegar þú talar, koma í veg fyrir að þú fáir að sitja við sama borð, leyfa þér ekki að vera með í  samræðum og fleira. Athugaðu samt að stundum vilja vinir vera í næði en ef það er þannig að flestir aðrir fá að vera með en þú færð yfirleitt ekki að vera hluti af hópnum þá er mögulega verið að leggja þig í einelti.
  • Einn eða fleiri virðast hafa gaman af því að láta þér líða illa, eða reyna að gera eitthvað til að fá aðra til að hlæja að þér eða finnast þú eitthvað asnalegur.
  • Einn eða fleiri búa til kjaftasögur um þig, eða ljúga einhverju um þig sem lítur illa út, koma þér í vandræði eða virðist vera gert til að láta þér líða illa.
  • Einn eða fleiri skemma hlutina þína, fela þá, taka þá af þér eða eitthvað þvíumlíkt.
  • Einn eða fleiri ógna þér, annaðhvort með orðum eða með líkamlegum hætti og það virðist vera í þeim tilgangi að gera þig hrædda(n) eða láta þér líða illa á annan hátt.
  • Einn eða fleiri bíða eftir þér, t.d. Í fataklefanum, úti í frímínútum, á leið í eða úr skóla eða annars staðar og það virðist vera í þeim tilgangi að gera eitthvað sem veldur þér vanlíðan.

Athugaðu að það er hægt að áreita á fleiri vegu en stendur hér fyrir ofan og þetta gildir hvort sem um er að ræða áreiti á netinu eða í eigin persónu.

Ekki er um einelti að ræða nema áreitið (það sem er gert til að láta manni líða illa) gerist oft en það skiptir ekki máli hvort það sé sama áreitið oft, eða mismunandi áreiti í hvert sinn. Stundum lenda börn nefnilega í samskiptavanda, þau rífast, einhver missir stjórn á skapi sínu, gera grín hvert að öðru eða annað svipað, án þess að einhver sé að reyna að láta öðrum líða illa.

Athugaðu samt að þó þetta sé ekki búið að gerast oft, þá er mjög gott að ræða strax við einhvern fullorðinn, sem getur fylgst með og hjálpað þér að átta þig á því hvað er að gerast. Það er líka mikilvægt að fá aðstoð áður en vandinn verður of stór, því stríðni eða annað áreiti sem virkar óviljandi eða saklaust getur á stuttum tíma breyst í einelti.