Er einelti í kringum mig?

Stríðni eða einelti?

Það er mjög algengt að börn stríði hvert öðru eða geri grín. Við erum öll misjöfn, sumir eiga auðvelt með að taka stríðni á meðan öðrum líður strax illa sé einhver að stríða eða gera grín að þeim.

Stundum sér maður einhvern vera að stríða og er ekki viss hvort maður eigi að skipta sér af eða ekki. Stundum er maður óviss af því að það er ekki ljóst hvort um „saklausa“ stríðni eða grín sé að ræða eða ekki en stundum er maður hikandi vegna þess sem gæti gerst í kjölfarið. Sumir eru hræddir um að verða þá sjálfir fyrir stríðni og sumir vita ekki hvað þeir eiga að segja eða hvernig þeir eiga að hjálpa.

Það er mikilvægt að hafa í huga að ef einhver er að stríða eða gera grín að öðrum og þeim sem er strítt virðist ekki finnast það skemmtilegt, þá er mikilvægt að hafa augun opin, láta einhvern vita, sýna þeim sem er strítt stuðning, bjóða honum/henni með þér í leik eða annað sem þú telur gagnlegt.

Hvernig lítur einelti út?

Það er mjög misjafnt hvernig einelti lítur út en ef þú verður var/vör við að eitthvað af eftirfarandi komi oft fyrir sama aðilann þá er mögulega verið að leggja hann í einelti. Þá er mjög mikilvægt að þú leggir þitt af mörkum og látir einhvern fullorðinn strax vita, þannig hjálpar þú viðkomandi.

  • Einhver gerir grín að öðrum, niðurlægir hann, kallar hann ljótum nöfnum og fleira í þeim dúr eða tekur þátt í því með einhverjum öðrum.
  • Einhver ræðst að líkama annars, t.d. með því að sparka, lemja, klípa, fella eða annað slíkt eða tekur þátt í því með einhverjum öðrum.
  • Einhver gefur öðrum einhvern svip, augngotur eða annað í þeim tilgangi að láta viðkomandi líða illa eða tekur þátt í því með einhverjum öðrum.
  • Einhver skilur ákveðinn aðila útundan, hunsar viðkomandi þegar hann/hún talar, kemur í veg fyrir að hann/hún fái að sitja við sama borð, leyfir honum/henni ekki að vera með í samræðum og fleira eða tekur þátt í því með einhverjum öðrum. Athugaðu samt að stundum vilja vinir fá að vera saman í næði og það er allt í lagi en ef viðkomandi leyfir flestum öðrum að vera með en ekki þessum aðila er mögulega verið að leggja hann í einelti.
  • Einhverjum finnst skemmtilegt að láta ákveðnum aðila líða illa, reynir að gera eitthvað til að fá aðra til að hlæja að viðkomandi eða finnast hann/hún asnaleg/ur. Einnig ef einhver tekur þátt í þessu með einhverjum öðrum.
  • Einhver býr til kjaftasögur um ákveðinn aðila, lýgur upp á hann einhverju sem lætur hann/hana líta illa út eða kemur viðkomandi í vandræði eða tekur þátt í því með einhverjum öðrum.
    Einhver skemmir hluti annars, felur þá, tekur þá af viðkomandi eða eitthvað þvíumlíkt eða tekur þátt í þessu með einhverjum.
  • Einhver ógnar ákveðnum aðila, hvort sem er með orðum eða líkamlegum hætti og virðist gera það til að hræða viðkomandi eða láta honum/henni líða illa á annan hátt eða tekur þátt í þessu með öðrum.
    Einhver bíður eftir ákveðnum aðila, t.d. í fataklefanum, úti í frímínútum, á leið í eða úr skóla í þeim tilgangi að gera eitthvað sem lætur honum/henni líða illa eða tekur þátt í því með öðrum.

Athugaðu að það er hægt að áreita á fleiri vegu en stendur hér fyrir ofan og þetta gildir hvort sem um er að ræða áreiti á netinu eða í eigin persónu.

Það er ekki um einelti að ræða nema áreitið (það sem er gert til að láta einhverjum líða illa) gerist oft. Þá skiptir ekki máli hvort það sé sama áreitið oft eða mismunandi áreiti í hvert sinn. Stundum lenda börn nefnilega í samskiptavanda, þau rífast, einhver missir stjórn á skapi sínu, gera grín hvert að öðru eða annað svipað, án þess að einhver sé að reyna að valda öðrum vanlíðan.

Athugaðu samt að þó þetta hafi ekki gerst oft, þá er mjög gott að ræða strax við einhvern fullorðinn sem getur fylgst með og skoðað hvað er að gerast. Það er mikilvægt að hægt sé að grípa inn í áður en vandinn verður of stór, því þó það virki saklaust sem er að gerast eða það hafi bara sjaldan gerst, getur það á stuttum tíma orðið alvarlegra og breyst í einelti.

Allir geta gert mistök

Það er mikilvægt að muna að allir gera mistök. Sumir gera sömu mistökin oftar en einu sinni, sumir eru fljótir að læra af mistökunum og aðrir eru lengur að læra af þeim. Sá sem leggur í einelti er ekki vondur eða illa innrættur, heldur einhver sem gerir mistök og þarf aðstoð við að breyta hegðun sinni. Það er því líka mikilvægt að segja frá svo hann/hún fái aðstoð.

Sýndu hugrekki

Það er mikilvægt að muna að þó þú sért hrædd/hræddur um að láta vita þá skiptir það miklu máli fyrir skólafélaga þína. Bæði þann sem verður fyrir eineltinu og líka þann sem er að leggja í einelti. Báðir aðilar þurfa aðstoð. Best er ef maður er nógu hugrakkur til að taka afstöðu gegn stríðni og einelti, segja eitthvað upphátt og hvetja aðra til að taka þátt í að stöðva það sem er í gangi, stuðla að því að allir fái að vera með í leikjum o.s.frv. Þannig gengur betur að stoppa eineltið. Það verður samt að muna að það á aldrei að fara í eitthvað stríð gegn þeim sem leggur í einelti, þar sem sá/sú er að gera mistök og það er jafn mikilvægt að honum/henni líði vel í hópnum eins og öðrum.

Stundum er samt erfitt að segja eitthvað upphátt og taka opinberlega afstöðu gegn eineltinu og stundum er maður hræddur við að vera kallaður „snitch“ eða klöguskjóða. Þá getur fyrsta skrefið verið að segja fullorðnum aðila frá því sem þú hefur áhyggjur af, bæði til að viðkomandi fái aðstoð og til að þú þorir að hjálpa. Það getur líka verið gagnlegt að ræða við þann sem þú heldur að sé að lenda í einelti og spyrja t.d. hvernig honum/henni líði. Það að láta viðkomandi vita að þú takir eftir því hvað er að gerast og þér sé ekki sama um það getur hjálpað mikið með líðan hans/hennar. Það getur líka verið gagnlegt að ræða við þann sem þú heldur að sé að leggja í einelti og spyrja um líðan og hvort þú getir gert eitthvað til að hjálpa honum/henni að hætta.

Ef þú heldur að það sé einelti í kringum þig, talaðu við einhvern fullorðinn og láttu vita, taktu afstöðu gegn því sem er að gerast og fáðu aðra í kringum þig til að gera það sama.

Smelltu á hnappinn hér að neðan til að fá upplýsingar um þá aðila sem þú getur leitað til.