Um verkefnið

Í byrjun maí 2009 var að frumkvæði þáverandi heilbrigðisráðherra boðað til samráðsfundar ráðuneytanna þriggja, þ.e. heilbrigðisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og félags- og tryggingamálaráðuneytis þar sem fjallað var um hvernig staðan væri í eineltismálum í íslensku samfélagi. Ástæða þess að boðað var til fundarins með þessum hætti var byggð á því mati heilbrigðisráðherra að bregðast þyrfti við auknu einelti með skýrum og markvissum hætti og það þyrfti að gerast á vettvangi ráðuneytanna þriggja. Önnur ástæða þess að ráðuneytin þrjú tóku höndum saman um að skerpa athygli að einelti í samfélaginu var niðurstaða Umboðsmanns Alþingis á árinu 2009 um stjórnunar- og eftirlitskyldur ráðuneyta í undirstofnunum.
Til samráðs ráðuneytanna voru einnig boðaðir fulltrúar Lýðheilsustöðvar sem tóku síðan að fullu þátt í samráðinu.
Á samráðsfundinum sem fyrr er nefndur var tekin sú ákvörðun að setja á laggirnar óformlegan starfshóp sem var falið það verkefni að kortleggja með heildstæðum hætti umfang vandans, framkvæma nauðsynlega greiningu á honum og koma með tillögur til lausnar. Vegna umfangs málsins var tekin ákvörðun um að afmarka umfjöllunina um stöðu eineltismála í skólum landsins og á vinnustöðum. Greinargerð um aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum má finna hér að neðan.

Einelti—Greinargerd-24-juni-2010

Í verkefnastjórninni eru eftirfarandi aðilar:

Árni Guðmundsson, verkefnastjóri
Ágústa Hlín Gústafsdóttir, formaður -  fulltrúi fjármálaráðuneytisins
Þór G. Þórarinsson, fulltrúi velferðarráðuneytisins
Valgerður Gunnarsdóttir, fulltrúi velferðarráðuneytisins
Guðni Olgeirsson, fulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytisins