6 – H – Jákvæð samskipti

“Gefum okkur tíma til að ræða við börn okkar á hverjum degi. Í samræðum foreldra og barna er mikilvægt að tala af einlægni, skiptast á skoðunum, lýsa tilfinningum sínum, virða sjónarmið hvert annars og byggja upp gagnkvæmt traust. Mikilvægt er að barnið finni að hlustað er á það. Þegar fjölskyldan hefur vanið sig á góð og uppbyggileg samskipti er auðveldara að ræða ágreiningsmál þegar þau koma upp innan sem utan fjölskyldunnar.
Í samræðum foreldra og barna, þar sem leiðarljósið er að hlusta á barnið deila skoðunum sínum og tilfinningum, eru foreldrarnir í raun að aðstoða börn sín við að verða ábyrg gerða sinna” segir m.a. að vandaðri vefsíðu 6H sjá nánar HÉR

Málstofa um einelti

Rannsóknarstofa í bernsku- og æskulýðsfræðum  –  BÆR   

og Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti standa að:

Málstofu um einelti

12. apríl  2012 kl. 14 -16:30 í stofu H 207 í húsnæði MVS við Stakkahlíð.

Aðgangur öllum opinn og er ókeypis.

Nýlega kom út ritið Ábyrgð og aðgerðir – Niðurstöður þverfræðilegrar rannsóknar á einelti meðal barna á Íslandi á vegum Rannsóknastofnunar Ármanns Snævarr. Ritið er gefið út af forlaginu  Codex. Rannsóknastofnunin ákvað að grunnskólar landsins fengju afhent eintak. Á heimasíðu ráðuneytis mennta- og – og menningarmála segir m.a. um útgáfuna:

“Stofnunin hafði forgöngu um þverfræðilega rannsókn á einelti meðal barna á Íslandi í samstarfi við félagsráðgjafadeild, lagadeild og menntavísindasvið Háskóla Íslands. Grunnurinn að rannsókninni voru þrjár meistararitgerðir, sem voru samþættar í lokaskýrslu. Í ritinu er fræðilegt yfirlit og greinargerð um aðferðir sem notaðar hafa verið hér á landi sem og erlendis til að vinna gegn einelti. Einnig eru teknar saman helstu niðurstöður rannsóknarinnar auk tillagna til úrbóta. Loks er í ritinu að finna útdrætti úr meistararitgerðunum þremur sem fjalla um einelti á þverfaglegum grundvelli.”

Rannsóknarstofa í bernsku- og æskulýðsfræðum, BÆR og verkefnastjórnin fagnar því að athyglin beinist að einelti  sem er ofbeldi sem skaðar einstaklinga til langs tíma og brýtur niður jákvæð mannleg samskipti hvar sem það á sér stað. Ofbeldi er eitt af rannsóknarsviðum meðlima í  BÆR.

Dagskrá:

Fundarstjóri: Vanda Sigurgeirsdóttir lektor Tómstunda- og félagsmálafræðibraut Menntavísindasviðs HÍ

Setning: Guðrún Kristinsdóttir,  stjórnarformaður BÆR

Ávarp: Ágústa H Gústafsdóttir, formaður Verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti.

Erindi:

14:15 – 14:30       Daníel Reynisson, M.A. í lögfræði  -  Einelti frá sjónarhóli lögfræði.

14:15 – 14:30       Hjördís Árnadóttir, M.A. í félagsráðgjöf  – Einelti frá  sjónarhóli  félagsráðgjafar.

14:45                     Kaffihlé

15:05 – 15:20       Sjöfn Kristjánsdóttir,  M.Ed.  í uppeldis- og menntunarfræðum- Einelti frá sjónarhóli      grunnskólakennarafræða.

15.20 – 15:40       Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri, Barnaheill Viðbrögð við ritinu.

15:40 – 16:00       Fulltrúi kennaradeildar MVS.

16:00 – 16:30      Umræða

BÆR – Rannsóknarstofa í barna- og æskulýðsfræðum hefur frumkvæði að og sinnir rannsóknum á lífi og lífsskilyrðum barna, unglinga og ungmenna þar sem menntun og uppeldi eru séð í heildrænu samhengi einstaklings og samfélags.

Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti er samstarfsverkefni Fjármála-, Mennta- og menningarmálráðuneytis og Velferðaráðuneytis um aðgerðir gegn einelti

Lítið myndband um einelti

Lítið myndband um einelti  – Höfundur lags og gítarar Baldur Þ.Ketilsson, söngur Hulda Gestsdóttir, píanó Pálmi Sigurhjartarson, kontrabassi Haffi Tempó, trommur Sigurvald Ívar Helgason, fiðla Kristín Sigurjónsdóttir, selló Fríða Teitsdóttir og hinn eini sanni Magnús Þór Sigmundsson samdi yndislegan texta um lagið. Lagið var tekið upp í studio Sýrland í febrúar 2010. Lagið heitir Hulduheimar og fjallar um barn sem fer glatt og kátt í skólann sinn 6 ára, erfiðleikar byrja að herja á, barnið verður fyrir einelti og persóna barnsins breytist, barnið einangrast og fjarlægist foreldrum sínum, barninu líður það illa að það þolir ekki við í veruleika sínum, eini öruggi staðurinn eru Hulduheimar, draumaheimar barnsins þar sem ekkert getur skaðað það.

Myndbandið er unnið af Guðlaugu Finnsdóttur, verkefnisstjóra Olweusarverkefnisins í Grunnskólanum í Sandgerði.

Í myndbandinu er kastað fram spurningum eins og: ,,Hvað er einelti? Hvar á það sér stað? Hvernig líður þeim sem verður fyrir einelti? Hvað get ég gert?”.

10 góð ráð

10 ráð til að vinna gegn einelti á vinnustað

frá ASÍ, BSRB,BHM, Landlæknisembættinu, Kennarasambandi Íslands, Samtökum Atvinnulífsins og Vinnueftirlitinu.
1. Vinnið markvisst að því að skapa jákvæðan starfsanda.
2. Gerið stefnu og viðbragðsáætlun gegn einelti og annarri
ámælisverðri framkomu á vinnustað.
3. Haldið reglulega starfsmannafundi um vinnuumhverfið.
4. Þjálfið stjórnendur í að leysa samskiptavandamál sem
upp koma svo þeir þori og geti tekist á við þau.
5. Skapið jákvæðan starfsanda á vinnustaðnum þannig að starfsmenn geti tekist á um ágreiningsmál án þess
að það leiði til neikvæðra samskipta.
6. Upplýsið starfsmenn vel um stefnu og ákvarðanir stjórnenda. Þá er minni hætta á neikvæðum orðrómi
og rangtúlkunum.
7. Komið á góðu samstarfi milli stjórnenda og fulltrúa starfsmanna. Það skapar traust og auðveldar samstarf
við að leysa vandamál á uppbyggilegan hátt.
8. Verið umburðarlynd og takið tillit til þess að manneskjur eru af ólíkum uppruna, hafa mismunandi lífsskoðanir,
hæfni og starfsgetu.
9. Vinnið gegn langvarandi streitu. Streita hefur neikvæð áhrif á starfsumhverfið.
10. Skráið fjarveru vegna veikinda á kerfisbundinn hátt.