0

Jákvæður stofnanabragur

Á vef fjármálaráðuneytisins er fjölþætt og vönduð umfjöllun um einelti á vinnstöðum og ekki síst hverning best er að bregðast við slíkri vá.   Þar kemur eftirfarandi fram:  “Einelti er alvarlegt vandamál á vinnustöðum sem stjórnendum ber að taka á. Afleiðingar þess eru ekki aðeins slæmar fyrir þolendurna heldur einnig fyrir rekstur stofnana eða fyrirtækja. Einelti getur haft margvísleg neikvæð áhrif á líðan starfsmanna, starfsánægju, metnað, fjarvistir og félagslegt starfsumhverfi. Það getur því valdið vinnuveitanda miklu fjárhagslegu tjóni.”

Það kemur jafnframt fram að rannsóknir  á Norðurlöndum og í Bretlandi gefi til kynna að almennt verði 3-10% starfsmanna fyrir einelti á vinnustað. Tíðni þess geti þó verið mismunandi eftir atvinnugreinum. Það virðist t.d. vera með hærra móti á heilbrigðis­stofnunum og ýmiss konar opinberri starfsemi. Í rannsókn meðal starfsfólks íslenskra fjármálastofnana árið 2002 kom fram að um 8% aðspurðra töldu sig vera þolendur eineltis. Sjá nánar vef fjármálaráðuneytisins.

Ummæli