Sáttmálinn

Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti

Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og einnig allra hópa sem ekki eiga sér málsvara eða sterka rödd. Við munum öll hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til þess að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er.

 

 

Þann 8. nóvember 2011 var sáttmálinn undirritaður við athöfn í Höfða.  Afrit af sáttmálanum má nálgast hér

Sáttmáli undirritaður af ráðherrum, borgarstjóra og framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga

Sáttmáli undirritaður af ráðherrum, borgarstjóra, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga og fulltrúum félag og samtaka