Einelti hefur dregist verulega saman á milli og ára og hefur aldrei mælst minna í Hagaskóla. Í nóvember 2011 var hin árlega Olweuskönnun lögð fyrir nemendur Hagaskóla. Þátttaka var mjög góð en 95,4 % nemenda svöruðu könnuninni þetta árið. Niðurstöðurnar sýna frábæran árangur skólans. Einelti hefur dregist verulega saman milli ára og hefur aldrei mælst minna síðan skólinn hóf innleiðingu áætlunarinnar árið 2005. Einnig segja langflestir nemendur í Hagaskóla eða 93,4% að þeim líði vel eða mjög vel í skólanum.
Þessar niðurstöður eru verulega ánægjulegar og sýna að vinnan við Olweusaráætluninar og önnur þróunarverkefni skólans hefur skilað sér í aukinni vinsemd, virðingu og öryggi meðal nemenda skólans.
Forsvarsmenn Hagaskóla eru að vonum mjög stoltir af nemendum skólans og óska þeim, aðstandendum þeirra og öllu starfsfólki skólans til hamingju með árangurinn. Jafnframt hvetja þau alla til að halda áfram því góða starfi sem hefur skilað þessum góða árangri.






