Haldið upp á að einelti hefur aldrei mælst minna í Hagaskóla

Einelti hefur dregist verulega saman á milli og ára og hefur aldrei mælst minna í Hagaskóla. Í nóvember 2011 var hin árlega Olweuskönnun lögð fyrir nemendur Hagaskóla. Þátttaka var mjög góð en 95,4 % nemenda svöruðu könnuninni þetta árið. Niðurstöðurnar sýna frábæran árangur skólans. Einelti hefur dregist verulega saman milli ára og hefur aldrei mælst minna síðan skólinn hóf innleiðingu áætlunarinnar árið 2005. Einnig segja langflestir nemendur í Hagaskóla eða 93,4% að þeim líði vel eða mjög vel í skólanum.

Þessar niðurstöður eru verulega ánægjulegar og sýna að vinnan við Olweusaráætluninar og önnur þróunarverkefni skólans hefur skilað sér í aukinni vinsemd, virðingu og öryggi meðal nemenda skólans.

Forsvarsmenn Hagaskóla eru að vonum  mjög stoltir af nemendum skólans og óska þeim, aðstandendum þeirra og öllu starfsfólki skólans til hamingju með árangurinn. Jafnframt hvetja þau alla til að halda áfram því góða starfi sem hefur skilað þessum góða árangri.

Saga Dagbjarts

Umfjöllun  Kastljóss um Dagbjart Heiðar Arnarsson föstudaginn 27. apríl lætur engan ósnortin.  Ef ýtt er á myndina af Dagbjarti þá  opnast tegill inn á vef Kastljóssins.

Ef ég sem starfsmaður kvarta ?

Á heimasíðu Vinnueftirlitsins kemur eftirfarandi fram: “Ef kvörtun um einelti á vinnustað berst Vinnueftirlitinu (VER) ræðir eftirlitsmaður við þann sem kvartar og bendir á upplýsingar á heimasíðu VER um hlutverk og aðkomu stofnunarinnar í slíkum málum. Hann upplýsir einnig um að neðangreindar upplýsingar þurfi að koma fram skriflega og bendir viðkomandi á staðlað form sem hægt sé að sækja á heimasíðu VER í þessu skyni.

Upplýsingarnar  sem þurf að koma fram eru:

1. Nafn meints þolanda.
2. Heiti vinnustaðar-deildar og nafn atvinnurekanda.
3. Nafn/nöfn yfirmanna.
4. Nafn/nöfn öryggistrúnaðarmanna, öryggisvarða og félagslegs trúnaðarmanns, ef viðkomandi hefur þær upplýsingar tiltækar. Ef við á, einnig nöfn annarra sem sérstaklega hefur verið falið að vinna að verkefnum á sviði vinnuverndar á vinnustaðnum.
5. Nafn og staða meints geranda eða lýsing á hópi starfsmanna ef um fleiri er að ræða sem meinta gerendur.
6. Upplýsingar um mögulegar breytingar á starfi þess sem kvartar, þ.e. hvort uppsögn hafi átt sér stað og hvort stéttarfélag viðkomandi hafi komið að málinu.
7. Lýsing á aðstæðum, þ.e. í hverju eineltið birtist, og hversu lengi það hefurviðgengist.
8. Hafa verið reyndar leiðir til úrlausnar og þá hvaða leiðir? Hverjir hafa komið að lausn málsins?
9. Ef tillögur eru að lausn málsins er æskilegt að þær komi fram.

Ef kvörtun um einelti hefur borist skriflega til VER án þess að bréfið innihaldi nægar upplýsingar sbr. ofangreint kallar eftirlitsmaðurinn sérstaklega eftir þeim.
Ef meintur þolandi treystir sér ekki til að senda umbeðnar upplýsingar til Vinnueftirlitsins getur eftirlitsmaður skráð upplýsingarnar samkvæmt þeim munnlegu upplýsingum sem hann hefur fengið frá þeim sem kvartar.”

Sjá nánar HÉR

Vel sótt málstofa um einelti

Það voru um 90 manns er sóttu málþing,  Verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti  og Rannsóknarstofu í bernsku og æskulýðsfræðum, um einelti. Guðrún Kristinsdóttir,  stjórnarformaður BÆR kynnti starfsemi rannsóknarstofunnar.  Ágústa H. Gústafsdóttir, formaður Verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti kynnti starfsemi verkefnastjórnarinnar og ekki síst mikilvægi þess að vinna í  þessum mikilvæga málflokki á þverfaglega vísu og með samstilltum hætti.

Daníel Reynisson, M.A. í lögfræði   Hjördís Árnadóttir, M.S.W. í félagsráðgjöf  og  Sjöfn Kristjánsdóttir,  M.A.  í uppeldis- og menntunarfræðum fluttu erindi er byggðu á lokaritgerðum þeirra um einelti. Ritið “Ábyrgð og aðgerðir – Niðurstöður þverfræðilegrar rannsóknar á einelti meðal barna á Íslandi“  á vegum Rannsóknastofnunar Ármanns Snævarr byggir á niðurstöðum úr ritgerðum þeirra. Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri, Barnaheill fjallaði um ritið. Gunnar J. Finnbogason varaforseti Kennaradeildar MVS ræddi um kennaramenntunina með tilliti til fyrirbyggjandi viðbragða gagnvart einelti. Að loknum erindum skiptu þátttakendur sér í hópa sem fjölluðu um einelti frá ýmsum hliðum og að því loknu voru almennar umræður og skoðanaskipti.